Velkomin á vefsíðu Kylfusmiðjunnar
Kylfusmiðjan er lítið einstaklings fyrirtæki. Stofnað og rekið af mér [Kjartan Drafnarson]. Ég hef haft brennandi áhuga á golfi síðan 1995, aðallega að spila en seinni ár, með vaxandi áhuga, einnig fiktað við kylfusmíði og viðgerðir.
Til að ýta þessu litla áhugamáli úr vör og bæta við þekkingu mína fór ég haustið 2023 til Mitchell Golf í Bandaríkjunum til að læra kylfusmíði og viðgerðir.
Ég mun aðeins bjóða gæða vörur og þjónustu og kappkosta að halda verðum sem næst því sem gerist í golfverslunum í Evrópu og USA.
Sem dæmi um topp þjónustu sem Kylfusmiðjan býður uppá og er trúlega ekki í boði annarsstaðar:
Með hverju seldu Mizuno setti (5ár) og Miura setti (10ár) fylgir sérstök þjónusta. Í henni felst að eigandinn getur komið 1x á ári til Kylfusmiðjunnar og látið mæla loft og legu. Ef einhver frávik eru þá er það lagfært og sett í upprunalegt stand.