Hver er Sean Toulon?

May 07, 2025

Hver er Sean Toulon?

Þetta er spurning sem ég fæ nokkuð reglulega eftir að ég varð einn af fáum umboðsaðilum fyrir Toulon pútterana í Evrópu. 

Hann hefur eiginlega verið eins og Spaugstofan sagði oft "maðurinn á bakvið tjöldin" í áratugi og innan golfheimsins er hann líklega ein af mestu goðsögnum golfkylfu hönnunar fyrr og síðar. 

 Sean og hans fólk hefur hannað suma af goðsagnakendustu golfkylfum sögunar, og nafnið hans er á vel yfir 100 einkaleyfum. Eftir langan og farsælan feril hjá TaylorMade, þar sem salan fór úr $270 milljónum uppí næstum $1,8 Billjón meðan hann var þar. Sean leiddi teymi sem hannaði vörur sem voru t.d.:

  • TaylorMade 300 seríuna af járnum og trjám
  • 500 seríuna af trjám
  • Endurlífgun á TP vörumerkinu, sem innihélt meðal annars frægu R510TP og TP Forged járnin.
  • R7 Quad (fyrsta driverin með færanlegum þyngdum)
  • Burner línuna í trjám og járnum
  • R9 línuna (Fyrsti driverinn með útskiptanlegu skafti)
  • R11 driverinn
  • Spider pútterinn
  • M1 og M2 driverinn (Rory segir að M2 driverinn sé hans uppáhalds kylfa af öllum sem frameiddar hafa verið). 

Eftir að hafa hætt hjá TaylorMade árið 2015, stofnaði Sean "Toulon Design" með tveimur af synum sínum, Tony og Joe. 

Toulon Design var hratt viðurkennt sem eitt af bestu merkjunum sem framleiddu fræsta púttera í heiminum. Toulon Design pútterar hafa verið notaðir til að vinna meira en 50 sinnum á stórum túrunum útum allan heim, og urðu næst stærstir af fræstum pútterum í atvinnumanna golfinu útum allan heim. Árið 2016 keypti Callaway síðan Toulon Desing og varð það High end deildin þeirr af fræstum pútterum. 

Meðan Sean var hjá Callaway leiddi hann Callaway hönnunar liðið og var framkvæmdastjóri Odyssey. Meðan hann var hjá Callaway þessi 7 ár þá stækkuðu bæði þessi merki meira en nokkurntíman áður og blómstraði í höndum bestu kylfinga heims.

í júlí 2023 hætti Sean hjá Callaway til að fara aftur í sitt eigið merki og Toulon Golf varð til, með syni sínum Tony og vini Toru Kamatari. Síðan hafa Preston Toulon og Jon Alongi (frá Mitsubishi golf) bæst við. 

 

Þannig að eins og þið sjáið, þá er ótrúleg reynsla og þekking sem liggur á bakvið hönnum Toulon púttera og framleiðslan líklega hvergi eins nákvæm og góð. Sannkallaðir Rolex pútterana og er stoltur að vera einn af fáum söluaðilum í Evrópu með þá.